2002.50

Ef þú upp­fyl­lir eitt eða fleiri af þes­sum ski­lyrðum á áhugasviðinu og ert i 30% hóp­num sem ekki les Frét­tablaðið, þá verður þú að ná þér í laugardagseintakið.

Þar er fjal­lað um bókakápurnar á jólabókunum af ýmsum sem vita hafa á eða skoðanir.

Það var líka kominn tími til. Þessi flokkur hön­nunar hefur ekki fengið neina umfjöl­lun og er ekki gjald­gen­gur í þann sne­fil af hön­nunarkepp­num sem þjóðinni er boðið upp á. Ég fagna því þessu skrefi eins hátt og hægt er. (það þyrfti að vera möguleiki á að festa hljóð við greinarnar hér). Greinin er skemmti­lega sett upp og með yfirhön­nunarál­its­g­jafann Guð­mund Odd í for­grunni, eins og til að gefa greininni aukið gildi ;-)

Annars sýndist auðvi­tað sitt hver­jum eins og vera ber. Gaman væri síðan að bera skoðanir þeirra sem talað var við saman við loka sölutölur bókanna.

Reyn­dar finnst ég er að min­nast á þetta þá eru nokkrir aðrir flokkar hön­nunar sem fá nánast hvergi að vera með í neinu. Nefni ég þá helst ársskýrslur til sögun­nar. Það er flokkur sem ski­lyrðis­laust ætti að vera með í Ímark, eins náteng­dar sem þær eru viðskip­talífinu. Meira um það síðar.

Frét­tablaðið fær þrjár fjaðrir fyrir fram­takið og tímabæra grein.

Share