2002.48

Þan­nig hor­fir maður í fyrsta skipti á svoleiðis auglýsin­gar að undir niðri hamast gisk­fru­man að reyna að giska á hvað sé verið að auglýsa. Og oft getur það verið svo að giskið hley­pur frá því að vera á að augýsin­gin sé frá fjár­málafyrirtæki eða tryg­gin­gafélagi; símafyrirtæki eða ég veit ekki hvað.

Ég er ekki að segja þetta sem gag­n­rýni. Nema þegar auglýsin­gin er nánast alveg eins upp­byggð og eit­th­vað sem er þekkt. Ég sá eina af þes­sari sort í gærkvöldi. Það virtist þó vera alveg ljóst að um væri að ræða matvöru. Sen­ni­lega ein­hvern ítal­skan mat..pasta eða eit­th­vað svoleiðis. Mjög kynæsandi mat í það minnsta.

En viti menn! Ora! hehe! Ég verð að endurskoða þes­sar vörur alvar­lega. Ora fiski­bol­lur hafa verið í topp tíu hjá mér frá unga aldri. Varla voru þeir að meina þær?

Ég var reyn­dar með talið mjög lágt stillt og gæti hafa misst af stórasannleik mitt í miðju giskinu. En auglýsin­gin var flott. Fer ekki ofan af því. Sér­lega snyr­ti­lega farið með rúm­se­nuna. (Sem er sér­le­gur veik­leiki í íslen­skri auglýsinga– og kvikmyn­dagerð). Kraftur, erótík, skemmti­leg lýs­ing og góð stemmn­ing gerir þetta að eftirmin­ni­le­gri auglýsingu. Og undirstrikað með Ora.

Þrjár fjaðrir fyrir þessa og ég hugsa að ég reyni að gal­dra fram Ora fiski­bol­lur í vikunni. Endurskoðaðar.

Share