2002.47
Þetta eru hundleiðinlegustu auglýsingar í heimi framleiddar eftir margreyndri formúlu. Eitt er samt alveg klárt: Við værum löngu laus við þessar auglýsingar úr sjónvarpi ef þær virkuðu ekki.
Nú bregður svo við að Apple fyrirtækið notar mjög svipaða formúlu í nýjustu herferð sinni, Switch. Ýmsar manneskjur standa á sviðinu og tala um hvernig það var að skipta frá PC yfir í Mac. En á einhvern hátt tekst í þeim að búa til miklu skemmtilegri auglýsingar úr þessu. Þá ekki síst af því að það glittir í einfaldan húmor þar sem sá sem segir frá er fórnarlambið. Þetta myndi maður seint sjá í sápuauglýsingunm. Leikstjóri þessara auglýsinga er maður að nafni Errol Morris en hann er þrautreyndur úr heimildarmyndageiranum. Herferðin (www.apple.com/switch hefur vakið heimsathygli og margir lagt út af þemanu með því að búa til grínútgáfur af þeim sem hafa birts víða á netinu. Ýmist með eða á móti makkanum.
Eftir því sem ég veit best hafa aðeins Íslendingar og Japanir gert staðfærðar auglýsingar í þessum stíl og hefur það orðið fréttaefni erlendis. Þessar íslensku eru ekki eingöngu um að menn hafi skipt heldur eru þær meira um hvað eigendur tölvanna séu ánægðir með þær. Sykurmolinn Einar Örn reið á vaðið í fyrstu auglýsingunni en hann eins og flestir hinir Molarnir hafa nefnilega notað makka um árabil og er Friðrik sá eini sem fór i switch“ núna fyrr á þessu ári.
Hvað um það, þá koma þessar auglýsingar afskaplega vel út (ég skal ekki lofa að ég sé fullkomlega hlutlaus sem makkanotandi síðan 1986). Það er nokkuð ljóst að þessar auglýsingar eru ekki íslenskar að uppruna en þær eru alla vega ekki dubbaðar eins og sápuauglýsingarnar eru gjarnan.
Svo fylgist maður spenntur með hvaða persónum verður teflt fram næst.
Þrjár fjaðrir fyrir útlit og inntak.
Eftirmáli 05.2005: Hvað er ekki búið að stæla þessar auglýsingar mikið síðan ég skrifaði þetta?

