2002.45_2
Ekki það að ég óski þess neitt sérstaklega að sjá Jakob Frímann sem þingmann, heldur er spenningur minn fólginn í því að sjá hvernig svona herferð eins og hann og stuðningsmenn hans reka kemur út. Skyldi vera hægt að komast á þing í krafti auglýsingaherferðar? Loka svar fæst ekki fyrr en í vor en ef Jakob kemst í óskasætið sitt gæti það haft veruleg áhrif á auglýsingar í tengslum við kosningar.
Ég gef engar fjaðrir að sinni því að mér finnst auglýsingarnar ekki bjóða upp á neitt nýtt í útliti eða framsetningu, en ef hann kemst í 2. eða 3. sæti er ég til í að endurskoða fjaðragjöf á markaðslegum forsendum.
Viðbót á sunnudegi: Geinilega ekki þörf á að breyta neinu með fjaðragjöfina.

